Lilja verður ekki formaður

Landsfundur SAMSTÖÐU, flokks lýðræðis og velferðar, verður haldinn 6. október nk. þar sem ný stjórn verður kosin sem og formaður en Lilja Mósesdóttir stofnandi Samstöðu hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi formannssetu. Núverandi bráðabirgðastjórn hvetur alla félagsmenn og stuðningsfólk til þess að taka þátt í landsfundinum og gefa kost á sér til starfa.

Með því að gefa ekki kost á sér til formennsku segir Lilja í yfirlýsingu sem hún gaf frá sér að þannig ætli hún að axla ábyrgð á fylgistapi flokksins undanfarna mánuði.

Fram að næstu alþingiskosningum ætlar hún að einbeita sér að störfum sínum á þingi og nýta fagþekkingu sína til að bæta stöðu almennings á Íslandi í kjölfar efnahagshrunsins.

Sjá yfirlýsingu Lilju HÉR

Fleiri fréttir