Lionsmenn komu færandi hendi
Á heimasíðu heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi segir frá því að fyrr í vikunni komu nokkrir félagar úr Lionsklúbbi Blönduóss og færðu stofnuninni sjónvarp og fylgibúnað að gjöf.
Á heimasíðunni segir; „Var um að ræða 50" sjónvarp, myndspilara og hljóðkerfi. Auðunn Sigurðsson flutti stutt ávarp og afhenti fh. Lionsklúbbsins gjöfina og sagði af því tilefni m.a. að það væri von félagsmanna Lionsklúbbs Blönduóss að búnaðurinn ætti eftir að koma að góðum notum fyrir skjólstæðinga stofnunarinnar. Valbjörn Steingrímsson forstjóri tók við gjöfinni fh. stofnunarinnar og sagði hann í sínu ávarpi að það væri ómetanlegt fyrir heilbrigðisstofnunina að fá slíka gjöf frá samtökum eins og Lionsklúbbur Blönduóss er og ekki væri á því vafi að gjöfin mundi nýtast vel. Þá væri einnig ástæða til að benda ættingjum vistmanna á að nú væri auðvelt að koma með á minniskubbi, myndasýningar að heima og sýna þær með einföldum hætti.“