Listamannaspjall á Skagaströnd

Nes listamiðstöð á Skagaströnd stendur fyrir listamannaspjalli í dag, miðvikudaginn 8. maí, kl 19:30 í Rannsóknasetri Háskóla Íslands á efstu hæðinni í Gamla kaupfélaginu.

Listamenn maí mánaðar í Nes listamiðstöð eru tólf og koma frá sex þjóðlöndum. Þeir dvelja ýmist allan mánuðinn eða lengur í listamiðstöðinni. Hver og einn þeirra mun spjalla um listsköpun sína í listamannaspjallinu í kvöld, en Nes stendur fyrir slíku spjalli einu sinni í mánuði.

Fleiri fréttir