Listasmiðja FNV í samvinnu við Nes listamiðstöð

Sarah Nance er bandarískur listamaður sem vinnur aðallega með skúlptúra, innsetningar og teikningu.  Hún er með MFA gráðu frá Universtiy of Oregon og hefur nokkra kennslureynslu. Sarah mun bjóða upp á einingabært helgarnámskeið í FNV 26.-27. október ef næg þátttaka fæst.

Á þessu tveggja daga námskeiði munu þátttakendur skapa skúlptúr eða innsetningu úr notuðu eða endurnýttu efni byggða á persónulegri reynslu eða minningu sem notuð verður sem innblástur í verkið. Byrjað verður á að gera tvívíða teikningu sem notuð verður sem uppistaða í gerð þrívíðrar myndar.

Sum grunnefni (pappír, verkfæri, lím og þess háttar) verða til staðar á námskeiðinu. Þátttakendur þurfa hins vegar að koma með eigið notað eða endurunnið hráefni sem þeir hyggjast nota. Þetta getur verið allt frá röri úr gosdrykkjarmáli til rekaviðar. Líttu í kringum þig í þínu daglega umhverfi og komdu með það sem grípur augað.

Spurningar sem fengist verður við á námskeiðinu eru eftirfarandi: Hvernig getur þú hlutgert eitthvað óþreifanlegt – t.d. minningu?  Hvernig getur þú sett fundinn hlut í listrænt samhengi? Hvað langar þig til að gera?

Skráningargjald er kl. 10:500, en nemendur í FNV greiða kr. 1.000.

 

Fleiri fréttir