Listasýning í Landsbankanum
Börnin á leikskólanum Barnaból á Skagaströnd hafa útbúið nokkur falleg listaverk sem prýða Landsbankann í sama bæjarfélagi. Á heimasíðu Barnabóls eru nokkrar myndir af listaverkum sem eru til sýnis, m.a. sjálfbært fólk sem búið er til úr „ónýtum“ pappírsrúllum og dollum. „Mikil tjáning er í hverju andliti og hver með sinn svip,“ segir á heimasíðunni.
Einnig eru verk eftir yngstu „blóm álfa“ leikskólans en þau rifu niður dagblöð og límdu á uppblásnar blöðrur, máluðu og fengu mynd af sér inn í blómkórónuna.
Þarna á einnig trjágreinar úr garði Lilja en þau eru skreytt blómum úr klósettpappírsrúllum, sem voru málaðar, klipptar niður í mjóa hringi og festar saman í blómakrans. Einnig alls konar glerkrukkur sem skeljar eru límdar á og ofan í er settur sandur frá Patreksfirði og tekerti.