Listaverkið Sólúr vígt á Skagaströnd á morgun

Á morgun, laugardaginn 20. september klukkan 14:00, verður listaverkið Sólúr, sem reist hefur verið á Hnappstaðatúni á Skagaströnd, formlega vígt. Listaverkið er eftir hinn þjóðkunna listamann Magnús Pálsson og er tilvísun í samspil tímans og sólargangsins þar sem gömul eyktarmörk eru í heiðri höfð.

Listskreytingasjóður ríkisins leggur verkið til og kostar hina listrænu hlið málsins en sveitarfélagið hefur lagt til uppsetningu þess. Vígsla verksins á Hnappstaðatúni er öllum opin og íbúar á Skagaströnd hvattir til að mæta og taka á móti listverki sem er líklegt að muni standa um langan tíma í miðju byggðarinnar. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.

Fleiri fréttir