Listir og menning nýr áfangi við FNV
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra býður nú á vorönn í fyrsta sinn upp á námsáfangann listir og menning eða LIM 1036. Áfanginn er skylduáfangi á kvikmynda-, lista- og hönnunarbrautum en öllum nemendum er frjálst að taka þennan áfanga sem valáfanga. Á vef skólans segir að áfanganum sé skipt upp í 5 til 6 lotur eða þemu þar sem nemendur kynna sér menningu og listir á ákveðnum stað og tíma.
Kennsla fer þannig fram að nemendur vinna í hópum þar sem hver hópur tekur fyrir ákveðna þætti menningar og lista, leitar heimilda, vinnur úr þeim og kynnir fyrir öðrum nemendum. Námsmat verður símat þar sem kennari metur árangur nemenda í rannsóknum, kynningu þeirra á verkefnum sínum og þátttöku í verkefnavinnu og öðru sem fram fer í áfanganum.