Litlu-jól og jólafrí í Húnavallaskóla

Föstudaginn 17. desember verða Litlu-jólin haldin í Húnavallaskóla og  mæta þá allir nemendur í skólann klukkan 10.00 með skólabílum. Skemmtiatriði hefjast klukkan 13.30 og eru foreldrar og nánustu ættingjar sem og aðrir velunnarar skólans velkomnir. 

Heimkeyrsla fyrir 1.-5.  bekk með skólabílum eða foreldrum að lokinni dagskrá eru áætluð klukkan 16.00 en diskótek stendur til klukkan 21.00 fyrir 6.-10. bekk.

Að loknu jólafríi hefst kennsla hjá nemendum Húnavallaskóla þriðjudaginn 4. janúar og  eiga nemendur að mæta í skólann þann dag klukkan 10.00.  Dagurinn verður að hluta nýttur til að ganga frá jólaskrauti og öðru sem viðkemur jólunum, eftir því sem kemur fram á heimasíðu skólans.

Fleiri fréttir