Ljómarallið í Skagafirði

Laugardaginn 23. júlí næstkomandi Verður Ljómarall í Skagafirði ræst af stað.
Fyrsti bíll fer af stað frá Vélavali í Varmahlíð klukkan átta og verða eknar fjórar leiðir um Mælifellsdal og tvær leiðir um Vesturdal. Úrslitin verða birt í Vélavali klukkan þrjú.

Á þeim tíma sem lokun þessara sérleiða varir er almenningi óheimilt að aka þá leið og ber að fylgja fyrirmælum starfsmanna keppninnar.

Rétt er að benda öllum á að fara varlega ef farið er að fylgjast með rallinu og enn og aftur fylgja fyrirmælum starfsfólks keppninnar og hafa öryggið í fyrirrúmi.

Ellefu bílar eru skráður til leiks og er þeim skipt í nokkra flokka.

/IÖF

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir