Ljósleiðaravæðing í Húnavatnshreppi
Undirbúningsvinna vegna ljósleiðaravæðingar Húnavatnshrepps er nú í fullum gangi. Með ljósleiðara kerfi munu íbúar sveitarfélagsins geta notið sömu eða betri fjarskiptagæða en þekkist í þéttbýli á Íslandi, hvort sem litið er til gagnaflutnings, internets, sjónvarps, síma eða annarra stafrænna samskipta.
Gert er ráð fyrir að ljósleiðaranetið verði að fullu í eigu Húnavatnshrepps eða félags í þess eigu og munu síma- og fjarskiptafyrirtæki bjóða íbúum þjónustu sína á ljósleiðaranetinu.
Öllum íbúum sveitarfélagsins mun bjóðast tenging inn fyrir húsvegg íbúðarhúss, íbúðar, sumarbústaðar eða hvar sem húseigandi óskar eftir tengingu, gegn því að viðkomandi greiði stofngjald og mánaðargjald. Er þetta sambærilegt og hjá öðrum sveitarfélögum þar sem sambærileg þjónusta er í boði.
Á síðasta fundi sveitarstjórnar Húnvatnshrepps var samþykkt að tengigjald yrði 250 þúsund krónur, hvort sem er fyrir lögbýli eða sumar- og frístundahús og mánaðargjaldið 2900 krónur. Er þetta sambærilegt og hjá öðrum sveitarfélögum þar sem sambærileg þjónusta er í boði.
Í fréttabréfi frá sveitarfélaginu, sem gefið var út á vefsíðu þess í upphafi árs, segir að frá upphafi hafi verið haft samráð við landeigendur um legu ljósleiðarastrengsins. Enda þekki þeir staðhætti, s.s. hvar aðrar lagnir liggja. Tryggt verði að dýpi ljósleiðarans verði nægjanlegt. Í ársbyrjun var sent út eyðublað til að kanna hversu margir vildu tengjast ljósleiðaranum, í því skyni að ljúka vinnu við teikningar og forval lagnaleiða.