Ljósnetið á landsbyggðina

Síminn útvíkkar enn þjónustu sína á landsbyggðinni með því að færa 53 nýjum stöðum Ljósnetið á árinu, þar á meðal eru Sauðárkrókur, Blönduós, Hvammstangi og Skagaströnd. Samkvæmt frétt á heimasíðu Símans þýðir Ljósnet á staðina meiri hraða, öflugra net og bætta sjónvarpsþjónustu fyrir þúsundir landsmanna.

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, segir fyrirtækið mjög stolt af því að geta boðið Ljósnetsþjónustuna utan höfuðborgarinnar. „Ljósnetið hefur fengið frábærar viðtökur þar sem það er í boði. Við höfum verið í góðu sambandi við forsvarsmenn fjölmargra sveitarfélaga undanfarna mánuði og það er greinilega mikill áhugi á að fá kraftmeiri tengingar og aðgang að fullri sjónvarpsþjónustu á Sjónvarpi Símans,“ segir Sævar á heimasíðu Símans.

Sævar Freyr segir að vegna þess hve vel landsmenn hafa tekið Ljósnetinu hafi verið ákveðið að hraða uppbyggingu þess á landsbyggðinni.

„Við vitum hve mikilvægt er fyrir sveitarfélög landsins að sitja ekki eftir á tækniöld, því fjarskipti skipa lykilsess í grósku samfélaga og farsæld fyrirtækja. Við gerum því okkar besta svo fjarskiptin stýri ekki byggðaþróuninni í landinu heldur skapi tækifæri fyrir landsmenn að hasla sér völl þar sem þeir vilja helst,“ bætir hann við.

Nú þegar geta 62 þúsund heimili nýtt Ljósnetið og stefnir Síminn að því að heimilin verði 100 þúsund um mitt ár 2014. Þegar búið verður að uppfæra þessa staði standa aðeins 1,4% landsmanna án fullrar sjónvarsþjónustu hjá Símanum, nærri helmingi færri en nú.

 

Fleiri fréttir