Ljótu hálfvitarnir í Miðgarði nk. föstudagskvöld
Það er alltaf stuð í Miðgarði. Alltaf. Það er bara innbyggt í staðinn. Og þegar þeir Ljótu mæta þar er ekki að sökum að spyrja, það verður allt vitlaust. Og þegar hálfvitar gera allt vitlaust verður það eins vitlaust og það getur orðið, ef ekki vitlausara. Þess vegna má búast við einhverju algjörlega stórbrotnu þegar Hálfvitar mæta í Miðgarð föstudaginn 9. ágúst.
Ný lög, gömul lög, miðaldra lög, hröð lög og aðeins minna hröð lög, allt verður þetta spilað í réttri röð með hæfilegum innskotum frá Hálfvitum inn á milli.
Tónleikarnir hefjast kl. 21, húsið verður opnað kl. 20.
Miðaverð er 2.500 kr. og er forsala í N1 Varmahlíð og N1 Sauðárkróki.
/Fréttatilkynning