Lög og ljóð Jónasar Tryggvasonar
Lög og ljóð Jónasar Tryggvasonar verða leikin og sungin á samkomu í Húnaveri laugardaginn 29. Júní kl 14. Jónas var einn þeirra sem reisti Húnaver en flutti til Blönduóss 1959 og rak þar verslun, blindraiðn og tónlistarskóla til æviloka.
Þeir sem koma fram eru Bergþór Pálsson söngvari, Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari og útsetjari, Valgarður Hilmarsson fyrrverandi oddviti, sem rifjar upp lífshlaup Jónasar og Eir og Þrúður Starradætur menntaskólanemar sem lesa ljóð.
Ingimar Halldórsson kvæðamaður, Ingi Heiðmar Jónsson og sr. Ólafur Hallgrímsson hafa undirbúið samkomuna sem er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra. Kaffisala verður í samkomulok.
Jónas Tryggvason fæddist í Finnstungu í Blöndudal 1916 og lést 1983. Hans þekktasta lag er "Ég skal vaka í nótt" sem Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps hefur gert að einkennislagi sínu.