Lögðu áherslu á að styrkja starfsemi sem fyrir er
Nokkrar tillögur Norðvesturnefndarinnar svokölluðu voru samþykktar af Ríkisstjórn í desember sl. Að sögn Arnars Þórs Sævarssonar bæjarstjóra á Blönduósi var mikil samstaða á svæðinu um að koma þessum tillögum til leiðar og að þakka beri Norðvesturnefndinni, með Stefáni Vagni Stefánssyni í broddi fylkingar, fyrir þá vinnu. „Varðandi Blönduósbæ þá tókum við afstöðu til þess að miða í rauninni við að styrkja það sem fyrir er, við töldum það vænlegt til árangurs,“ sagði Arnar í viðtali við Feyki sem kom út sl. fimmtudag.
Ein tillagan var áreiðanleikakönnun á hagkvæmni lífdísilframleiðslu á Blönduósi og fengust tíu milljónir í það verkefni. Mikið magn af dýrafitu fellur til í sláturhúsum á Norðurlandi vestra og segir Arnar mikil tækifæri fólgin í þeirri ónýttu auðlind. Efla verkfræðistofa hefur unnið að því að skoða fýsileika framleiðslunnar á Blönduósi fyrir sveitarfélagið. Horft hefur verið til urðunarsvæðisins á Sölvabakka sem vænlegrar staðsetningar undir þessa verksmiðju.
Önnur tillaga sem hlaut hljómgrunn tengist Kvennaskólanum á Blönduósi og starfseminni þar. Arnar segir eftirspurn erlendra textílnema og -listamanna eftir að koma og dvelja í skólanum til lengri eða skemmri tíma hafa stóraukist síðustu ár og oft á tíðum fullbókað. 20 milljónir fengust til að halda áfram vinnu við viðhald á Kvennaskólanum og m.a. til að gera upp kennarabústaðina til að mæta aukinni eftirspurn eftir gistingu. „Þessir fjármunir nýtast í að halda áfram með viðhaldsframkvæmdir og síðan fengum við líka fjármagn til þess að styðja við þessa uppbyggingu,“ segir Arnar en 25 milljónir fengust í að ráða tvo sérfræðinga til Þekkingarsetursins.
Þá fengust einnig fjármunir í að vinna áfram með þá hugmynd um að reisa álver á Hafurstöðum. Í þann málaflokk fengust 30 milljónir. „Þetta er gríðarlega stórt viðfangsefni og við lítum svo á að féð sé fyrir árið í ár. Þetta er verkefni sem tekur þrjú til fjögur ár, vonandi ekki meira,“ segir Arnar.
Nánar er fjallað um tillögur Norðvesturnefndar sem fengu brautargengi á Blönduósi í Feyki.