Lögreglan á Blönduósi framtakssöm

Í skýrslu um framkvæmd umferðaröryggisáætlunar 2010 sem nýlega er komin út kemur fram að sumarið 2010 var framkvæmt sérstakt hraðaeftirlit sem lögregluembætti landsins tóku þátt í. Samkvæmt skýrslunni ók lögreglan á Blönduósi mest á meðan á eftirlitinu stóð og eyddi flestum vinnustundum í það. Þá voru hlutfallslega flest hraðakstursbrot skráð hjá lögreglunni á Blönduósi eða 25,4% en næstflest hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eða 13%.

 

Þetta kemur fram á Húni.is sem rýnir vel í skýrsluna en þar kemur m.a. fram að eftirlitið hófst í júlí 2010 og stóð fram í september sama ár en alls voru það 12 embætti sem framkvæmdu eftirlitið. Á þessu tímabili voru vinnustundir vegna eftirlitsins 4.354 klukkustundir og eknir voru 115.895 km. Heildarfjöldi brota var 2.251 en þar af voru hraðakstursbrot 1.811 en önnur brot eru t.d. að ökuskírteini var ekki meðferðis, ökumaður ók án ökuréttinda eða sviptur ökuréttindum, ljósanotkun var ábótavant, bílbelti var ekki notað, ölvun við akstur og vítaverður akstur.

Sjá frétt Húna.is

Fleiri fréttir