Lögreglan á Sauðárkróki lýsir eftir Davíð Má Bjarnasyni.

Davíð er á 15 ára gamall og er um 175 cm. á hæð.  Davíð er þéttvaxinn, væntanlega klæddur í brúna úlpu með loðkraga,  gallabuxur eða íþróttabuxur og svarta skó.  Davíð er stuttklipptur  með skollitað hár.

Síðast sást til Davíðs á miðvikudag þar sem hann fór í rútu frá Varmahlíð sem var á leið til höfuðborgasvæðisins.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Davíðs eða hvar hann heldur sig eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Sauðárkróki í síma 455-3366.

Fleiri fréttir