Lögreglan minnir á notkun ljósa og glitmerkja

Lögreglan á Norðurlandi vestra vill koma þeirri beiðni til foreldra og eða forráðamanna barna að sérstök ástæða sé til að fara yfir ljósabúnað reiðhjóla barnanna í skammdeginu.
Lögreglan á Norðurlandi vestra vill koma þeirri beiðni til foreldra og eða forráðamanna barna að sérstök ástæða sé til að fara yfir ljósabúnað reiðhjóla barnanna í skammdeginu.

Lögreglan á Norðurlandi vestra vill koma þeirri beiðni til foreldra og eða forráðamanna barna að sérstök ástæða sé til að fara yfir ljósabúnað reiðhjóla barnanna í skammdeginu. Samkvæmt reglugerð um gerð og búnað reiðhjóla segir í 4. grein:

Ljós og glitmerki.

Reiðhjól skal búið rauðu þríhliða glitmerki að aftan og hvítu að framan. Á báðum hliðum fótstigs skulu vera hvít eða gul glitmerki. Gul eða hvít glitmerki skulu vera í teinum hjólsins. Reiðhjól sem notað er í myrkri eða skertu skyggni skal búið ljóskeri að framan sem lýsir hvítu eða gulu ljósi og ljóskeri að aftan sem lýsir rauðu ljósi. Ljóskerin skulu vera fest við hjólið.

Ljóskerið að framan skal lýsa nægilega vel án þess að valda glýju.“

Við biðjum einnig aðra vegfarendur að taka sérstakt tillit til barnanna í umferðinni.

/Fréttatilkynning frá Lögreglunni á Norðurlandi vestra.

Fleiri fréttir