Lögreglumenn reiðir
Félagsfundur Lögreglufélag Norðurlands vestra sendi frá sér ályktun í síðustu viku þar sem lýst er yfir mikilli reiði og miklum vonbrigðum með niðurstöðu launaliðar gerðardómsins sl. föstudag .
„Lítur fundurinn svo á að lögreglumenn hafi verið niðurlægðir af ríkisvaldinu enn og aftur eftir að hafa verið án kjarasamnings í nærri 300 daga. Það er ljóst að lögreglumenn muni núna taka sér tíma til að sleikja sár sín og ákveða til hvaða aðgerða verði gripið í kjölfar dómsins," segir í ályktun fundarins.
„Félagsfundurinn vill jafnframt taka fram að hann fagni þeim stuðning sem að lögreglumenn hafa fundið hjá hinum almenna borgara í orði og á borði síðastliðin misseri. Það er ljóst að sá stuðningur ríkir ekki hjá forráðamönnum þessarar þjóðar“ segir í tilkynningunni.
Lögreglumenn, sem sóttu fundinn, segja að þeir muni ekki taka þessari niðurstöðu þegjandi og íhugi alvarlega hvort þeir geti hugsað sér að vinna áfram hjá atvinnurekanda sem ekki meti starfskrafta þeirra meir en dómurinn sýnir.