Lokakeppni Mótaraðar Neista í kvöld
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Hestar
07.04.2014
kl. 08.58
Þá er komið að lokakeppni Mótaraðar Neista en keppt verður í tölti og fimmgangi í kvöld, mánudagskvöldið 7. apríl. Keppni hefst kl.19.00 og er athygli vakin á breyttum tíma. Sem fyrr er frítt inn fyrir áhorfendur og því er um að gera að koma og horfa á lokamót vetrarins.
Sem fyrr eru kaffiveitingar í hléi seldar af nemendum í 10. bekk Blönduskóla, sem hluti af þeirra fjáröflun.