Lokamót Mótaraðar Neista

Lokamót Mótaraðar Neista verður haldið í Reiðhöllinni Arnargerði sunnudaginn 7. apríl kl. 19:00. Keppt verður í tölti og fimmgangi. Í tölti er keppt í unglingaflokki (16 ára og yngri), áhugamannaflokki og í opnum flokki. 

Á heimasíðu hestamannafélagsins Neista kemur fram að keppt verður í fimmgangi allra flokka það er að segja að allir flokkar keppa saman og eru í pottinum 5,4,3,2 og 1 stig fyrir þá fimm fyrstu sætin. Þeir sem þessi stig hljóta taka þau svo með sér inn í sína flokka.

Fimmgangskeppnin verður með hefðbundnu sniði og stýrt af þul. Skeiðið verður riðið í gegnum höllina, tveir sprettir.  Að því loknu verður keppt í hefðbundnu tölti í öllum flokkum þ.e.a.s.  hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt.

„Þetta er lokamót mótaraðar Hestamannafélagsins Neista og vonar mótanefnd að um góða þátttöku verði að ræða. Þetta kvöld ráðast úrslitin í heildarstigakeppni mótaraðarinnar og verða veitt verðlaun til þriggja stigahæstu knapa í hverjum flokki,“ segir á heimasíðunni.

Skráningargjald er kr.1.500 fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur eftir það. Í unglingaflokki 500 kr. hver skráning. Skráning sendist á netfang neisti.net@simnet.is fyrir miðnætti í kvöld, föstudagskvölds 5. apríl. Fram þarf að koma knapi og hestur og upp á hvaða hönd skal riðið sem og í hvaða flokki er keppt.

Skráningargjöld má greiða inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139  áður en mót hefst en það má líka greiða á staðnum (ekki er tekið við greiðslukortum).

Eins og áður sér 10. bekkur um sjoppuna, þar verður hægt að fá kaffi, gos og eitthvað með því.

Fleiri fréttir