Lokaskráningardagur í dag

Í dag, miðvikudaginn 11. apríl, er síðasti dagurinn sem hægt er að skrá sig til þátttöku á lokamóti Húnvetnsku liðakeppninnar sem fer fram nk. laugardag, þann 14. apríl kl. 13.30. Þar verður keppt í tölti, í 1., 2. og 3. flokki og unglingaflokki í tölti T3 (fegurðartölt í staðin fyrir yfirferðartölt).

Skráning þarf að berast fyrir miðnætti hjá Kollu á mail: kolbruni@simnet.is. Við skráningu þarf að koma fram kt knapa, IS númer hests, fyrir hvaða lið knapi keppir og upp á hvora höndina skal riðið.

Skráningargjaldið er 2000 kr. fyrir fullorðna og 1000 fyrir unglinga, 17 ára og yngri, og greiðist inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst.

Prógrammið er hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt. Ekki verður snúið við. Það verða tveir inn á í einu og stjórnað af þul. Í mótaröðinni mega knapar ekki keppa á sama hesti í sömu grein, t.d. má unglingur ekki keppa í tölti á einu móti og fullorðinn á öðru móti í mótaröðinni, sama á við um tölt T7 o.s.frv., samkvæmt heimasíðu Þyts.

Aðgangseyrir er 1000 en frítt fyrir 12 ára og yngri.

Fleiri fréttir