Loksins er farið að snjóa

Veðurkort á Veður.is fyrir kl. 14:00 í dag.
Veðurkort á Veður.is fyrir kl. 14:00 í dag.

Það hefur kyngt niður snjó á Norðurlandi vestra í nótt og það sem af er degi en svæðið hafði orðið talsvert útundan í snjókomu síðustu daga. Nú upp úr hádegi fór síðan að hvessa þannig að líklegt má teljast að það dragi í skafla og færð spillist. Siglufjarðarvegi hefur verið lokað vegna snjóflóðahættu og Lágheiði er ófær.

Flestir vegir á vegakorti Vegagerðarinnar fyrir Norðurland vestra eru merktir snjó og krapi en skásta færið er sem stendur á Öxnadalsheiði þó þar sé éljagangur. Snjókoma er í Húnavatnssýslum, skafrenningur á Þverárfjalli og éljagangur á Vatnsskarði.

Veðurstofan gerir ráð fyrir vaxandi norðanátt, 10-18 m/s eftir hádegi með snjókomu og skafrenningi, hvassast á annesjum. Heldur hægari og úrkomuminna í kvöld og nótt, norðaustlæg átt 3-8 á morgun og él. Frost 0 til 6 stig í dag, en harðnandi frost á morgun.

Ef spár ganga eftir verður kalt en skaplegt veður fram á miðvikudag en þá fer að hríða á ný. Það er í það minnsta ljóst að ferðalangar ættu að fylgjast vel með veðurspá og færð á næstunni.

Fleiri fréttir