Lóuþrælar í Blönduósskirkju
Karlakórinn Lóuþrælar úr Húnaþingi vestra verða með tónleika í Blönduósskirkju, miðvikudagskvöldið 18. mars k. 21.00.
Dagskráin er blönduð og fjölbreytt, íslensk og erlend lög.
Stjórnandi er Guðmundur St. Sigurðsson og undirleikari Elinborg Sigurgeirsdóttir. Aðgangseyrir er kr. 1.500 (ekki posi) Í boði eru hljómdiskar með Lóuþrælum á góðu verði.
