Lóuþrælar í Færeyjum
Karlakórinn Lóuþrælar eru í söngferðalagi í Færeyjum þessa dagana. Flogið var á miðvikudaginn og sungið samdægurs í Vesturkirkju. Fimmtudagsmorgunn var svo tekinn snemma af nokkrum félögum sem mættu í færeyska útvarpið í smá viðtal í morgunþættinum.
Lóuþrælar að syngja í Vesturkirkju
Eftir skoðunarferð í Kirkjubøur var farið í Gøtu þar sem Lóuþrælar héldu tónleika í kirkjunni. Kórfélagar í Gøtu tóku vel á móti íslendingunum en eftir dýrindis máltíð tók við söngur og að lokum færeyskur dans. Mikil stemmning var og almenn ánægja með heimsóknina.
Hlið við kirkjuna í Kirkjubøur
Föstudagurinn verður frekar léttur hvað skipulag varðar en þá er planað að syngja í Lágagarður Ellisheim. Ólavsvakan hófst í dag (fimmtudag) og munu íslendingarnir fá að njóta hennar og hafa allir fengið dagskrá í hendur.
Hægt er að fylgjast með ferðum Lóuþræla og skoða myndir frá ferðinni inni á bloggi kórsins á www.louthraelar.123.is .
/Lóuþrælar
Borðhald eftir tónleika í Gøtu