Lóuþrælar með jóladisk og tónleika á aðventu

Karlakórinn Lóuþrælar í Húnaþingi hefur sent frá sér sinn þriðja hljómdisk. Diskurinn, sem heitir - Ég man þau jólin - hefur að geyma tólf  jóla- og aðventulög íslensk og erlend og eru þau frá ýmsum tímum. Stjórnandi kórsins er Guðmundur St. Sigurðsson og undirleikari er Elinborg Sigurgeirsdóttir. Kórinn skipa um 30 söngmenn úr öllum sveitum héraðsins.

Í tilefni útgáfunnar mun kórinn halda tónleika á þremur stöðum nú á aðventunni,  Fyrstu tónleikarnir verða í Búðardal miðvikudaginn 10. desember kl. 21, næstu á Hólmavík, laugardaginn 13. desember kl. 16 og á þeir síðustu í Félagsheimili Hvammstanga, miðvikudaginn 17. desember kl. 21.

Fleiri fréttir