Lukku Lækir á Feykir.is

Nú er Feykir kominn með nýja Facebook síðu, fulla af fjörugum fréttum af Norðurlandi vestra og af því tilefni efnir Feykir til hlægilega létts Lukkuleiks á þessum sívinsæla samskiptavef sem Facebook er.

 

Allir Feisbókarar sem læka á Feyki.is hér á forsíðunni eða inn á Facebook eiga kost á ferskum fréttum á vegginn hjá sér auk þess að fyrsta vetrardag, þegar gormánuður gengur í garð, verða dregnir út þrír lukkunnar pamfílar sem hafa unnið til einhverra eftirtalinna vinninga, einungis með því að læka Feyki.is.

  • 1.             Strigaprent að verðmæti 7500 + frí áskrift að Feyki í fjóra mánuði.
  • 2.             Frí áskrift að Feyki í fjóra mánuði.
  • 3.             Frí áskrift að Feyki í tvo mánuði.

Þeir sem þegar hafa lækað eru komnir í pottinn. Já, lauflétt Like gæti fært þér lukku!

Fleiri fréttir