Lygnt og léttskýjað í dag

Hæg austlæg eða breytileg átt og léttskýjað er á Norðurlandi vestra í dag. Hiti 5 til 15 stig. Á morgun verður austan 8-13 m/s. Skýjað með köflum á N- og V-landi, annars rigning, einkum SA-lands. Hiti frá 5 stigum með A-ströndinni, upp í 15 stig V-til.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:

Austlæg átt 5-13 m/s og bjartviðri, en rigning með köflum A-lands. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag:

Norðaustan- og austan 8-13 m/s. Skýjað og dálítil væta af og til NA- og A-lands, en bjartviðri annars staðar. Kólnandi veður.

Á föstudag:

Útlit fyrir norðaustanátt. Rigning með köflum á NA- og A-landi og slydda í innsveitum. Lengst af bjart veður um landið S- og V-vert. Hiti frá 1 stigi í innsveitum NA-til upp í 11 stig að deginum SV-lands.

Á laugardag og sunnudag:

Lítur út fyrir hæga norðaustanátt, víða bjartviðri en skýjað NA-til og lítilsháttar væta með austurströndinni. Hiti breytist lítið.

Fleiri fréttir