Lýsa yfir óvissustigi - ekkert lát á skjálftavirkni

Ríkislögreglustjóri ákvað í gærkvöldi að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi. Fram kemur í tilkynningu að þetta sé gert að höfðu samráði við vísindamenn, lögreglustjórana á Sauðárkróki, Akureyri og Húsavík.

Í fréttatilkynningu segir að Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, almannavarnir í héraði, viðbragðsaðilar og vísindamenn hafa allir verið að vinna mikla vinnu síðan hrinan hófst á laugardaginn. Verkefni sem eru lýsandi fyrir vinnu þessara aðila á óvissustig.

„Því var talið rétt að óvissustigi yrði lýst yfir til samræmis við vinnu og viðbrögð þessara aðila.  Óvissustig á við þegar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúru- eða mannavöldum sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar sé ógnað,“ segir í tilkynnginunni.

Vísindamannaráð almannavarna fundaði í gær og var niðurstaða fundarins að á þessu svæði er þekkt að verða stórir jarðskjálftar, um 2 til 3 á öld.  Það er einnig þekkt að stórir skjálftar fylgi jarðskjálftahrinum þó það sé ekki víst.

„Hrinan sem nú er í gangi er sú öflugasta sem mælst hefur á 20 ára tímabili. Þá er einnig rétt að hafa í huga að stór jarðskjálfti á Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu gæti hleypt af stað öðrum stórum skjálfta annað hvort á sama misgenginu eða á Grímseyjarbeltinu sem liggur til norðvesturs frá Kópaskeri.

Fyrir þá landsmenn sem búa á eða við þekkt jarðskjálftasvæði er þetta gott tækifæri til þess að velta fyrir sér hvaða ráðstafanir er hægt að gera til að draga úr tjóni og minnka líkur á slysum vegna jarðskjálfta,“ segir loks í tilkynningunni.

Á heimasíðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra má nálgast upplýsingar um ýmsar varnir til að draga úr tjóni og/eða slysum í jarðskjálfta, bæði á heimilum og vinnustöðum. Varnir fyrir jarðskjálfta má finna hér. Viðbrögð við jarðskjálfta má finna hér 

Ekkert lát á skjálftavirkni

Á heimasíðu Veðurstofu Íslands kemur fram að ekkert lát var á skjálftahrinunni við Eyjafjarðarál í nótt og heldur meiri virkni var í nótt en í gær.  Kl.  22:19 mældist skjálfti af stærðinni 3,2, 4,6 km NNV af Gjögurtá og kl. 03:42 í morgunn varð skjálfti af stærðinni 3,5, 20.6 km NA af Siglufirði. Stór hluti virkninnar í nótt hefur verið nálægt upptakasvæðum þessara tveggja skjálfta.

 

Fleiri fréttir