Maður ársins 2016 á Norðurlandi vestra

Feykir óskar eftir tilnefningum fyrir Mann ársins á Norðurlandi vestra árið 2016. Þær þurfa að berast fyrir miðnætti á sunnudaginn, 18. desember.
Feykir óskar eftir tilnefningum fyrir Mann ársins á Norðurlandi vestra árið 2016. Þær þurfa að berast fyrir miðnætti á sunnudaginn, 18. desember.

Líkt og undanfarin ár auglýsir Feykir eftir tilnefningum um mann ársins á Norðurlandi vestra. Feykir hefur staðið fyrir slíkum tilnefningum í nokkur ár og var Anna Pálína Þórðardóttir á Sauðárkróki kosin Maður ársins 2015.

Tilnefningunni skal koma til Feykis á netfangið feykir@feykir.is í síðasta lagi á miðnætti næstkomandi sunnudagskvöld, 18. desember. Tilgreina skal fullt nafn, gera stutta grein fyrir viðkomandi einstaklingi og rökstyðja valið á einhvern hátt. 

Fleiri fréttir