Mæðgin urðu meistarar

Meistaramót GSK var leikið á Háagerðisvelli á Skagaströnd í blíðskapar veðri daganna 11. til 13. júlí sl. Leiknar voru 36 holur og fóru leikar svo að mæðginin Dagný Marín og Sverrir Brynjar urðu klúbbmeistarar og Sigurður Sigurðarson sigraði í 1. flokki karla.

Úrslit:

  • Kvennaflokkur:  Dagný Marín Sigmarsdóttir
  • Karlar meistaraflokkur:  Sverrir Brynjar Berndsen
  • Karlar 1. flokkur:. Sigurður Sigurðarson

Meðfylgjandi mynd var tekin á meðan á mótinu stóð. Þarna á hlöðnum garði á 5. braut stendur slyngur sláttumaður. Kúlan hafði staðnæmst ofan á garðinum og með lagni tókst honum að ná góðu höggi nærri því inn á flöt.

/Skagaströnd.is

Fleiri fréttir