Mældur á 162 km hraða á milli Sauðárkróks og Varmahlíðar
Það var mikið um að vera Lögreglunni á Norðurlandi vestra síðastliðna viku samkvæmt fésbókarsíðu embættisins en þar hafa umferðarmál komið mikið við sögu. Alls voru 152 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og var sá hraðasti mældur á 162 km/klst á milli Sauðárkróks og Varmahlíðar þar sem hámarkshraði er 90.
Í gær var sérstakur umferðareftirlitsdagur og voru fjórar lögreglubifreiðar af því tilefni við hraðaeftirlit samtímis á þjóðvegum umdæmisins. Bensínfóturinn var of þungur hjá 45 ökumönnum og voru þeir kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá hraðasti mældist á 138 km/klst á þjóðvegi 1, í Blönduhlíð, þar sem hámarkshraði er 90 km/klst.
Framundan hjá Lögreglunni á Norðurlandi er áframhaldandi umferðareftirlit og eru ökumenn beðnir um að virða hámarkshraða á vegum og sýna tillitsemi í umferðinni.