Magnaðir hestar skráðir til leiks

„Ráslistinn er klár fyrir fjórganginn í KS-Deildinni sem fer fram á miðvikudaginn í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Það er greinilegt að við munum sjá hörku spennandi keppni enda magnaðir hestar skráðir,“ segir í fréttatilkynningu frá forsvarsmönnum KS-deildarinnar.

Fimm af sex efstu hestum úr A-úrslitum frá fjórganginum í fyrra eru skráðir, ásamt sínum knöpum, en það eru þeir Ísólfur og Kristófer, Bjarni og Roði, Viðar og Björg, Þórarinn og Taktur og Elvar og Hlekkur.

„Það verður því gaman að fylgjast með baráttu þeirra á miðvikudaginn og einnig eru nýir athyglisverðir hestar skráðir til leiks og verður spennandi sjá hvort þeir munu blanda sér í baráttuna um efstu sæti. Það vekur einnig athygli að Trymbill frá Stóra-Ási er skráður í fjórganginn en hann hefur hlotið 10 fyrir skeið í kynbótadómi,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Mótið hefst klukkan 20:00 en þá verða knapar og lið kynnt ásamt dómurum deildarinnar. Aðgangseyrir er 1.500,- og gildir miðinn sem happdrættismiði, dregið verður um tvo folatolla í vinning undir stóðhestana Hvítserk frá Sauðárkróki og Kná frá Ytra-Vallholti. Athygli er vakin á því að ekki er sýnt beint frá keppninni í ár.

Hér að neðan er ráslisti fyrir keppniskvöldið:

1. Bjarni Jónasson - Roði frá Garði   / Weierholz

2. Tryggvi Björnsson - Þytur frá Húsavík   / Top Reiter - Syðra Skörðugil

3. Hlín C Mainka Jóhannesdóttir - Dúkkulýsa frá Þjóðólfshaga   / Björg - Fákasport

4.Jóhann B. Magnússon - Embla frá Þóreyjarnúpi   / Weierholz

5. Ísólfur Líndal Þórisson - Kristófer frá Hjaltastaðahvammi   / Laekjamot.is

6. Baldvin Ari Guðlaugsson - Öngull frá Efri-Rauðalæk   / Top Reiter - Syðra Skörðugil

7. Viðar Bragason - Björg frá Björgum   / Björg - Fákasport

8. Líney María Hjálmarsdóttir - Völsungur frá Húsavík   / Hrímnir

9. Elvar E. Einarsson  - Hlekkur frá Lækjamóti   / Top Reiter - Syðra Skörðugil

10. Mette Mannseth   - Trymbill frá Stóra-Ási   / Draupnir - Þúfur

11. Sölvi Sigurðarson - Bjarmi frá Garðakoti   / Laekjamot.is

12. Arnar Bjarki Sigurðarson - Mímir frá Hvoli   / Draupnir - Þúfur

13. Sigvaldi Lárus Guðmundsson - Smyrill frá Hamraendum   / Weierholz

14. Vigdís Gunnarsdóttir - Freyðir frá Leysingjastöðum   / Laekjamot.is

15. Þórarinn Eymundsson - Taktur frá Varmalæk   / Hrímnir

16. Þorbjörn  H. Matthíasson - Fróði frá Akureyri   / Björg - Fákasport

17. Hörður Óli Sæmundarson - Fífill frá Minni-Reykjum   / Hrímnir

18. Gísli Gíslason - Ljóska frá Borgareyrum   / Draupnir - Þúfur

Fleiri fréttir