Magnea Rut sigrar í smásagnakeppni FEKÍ
Magnea Rut Gunnarsdóttir, nemandi í 8. bekk í Húnavallaskóla, hlaut 1. verðlaun í smásagnakeppni fyrir grunn- og framhaldsskóla sem Félag enskukennara á Íslandi efndi til. Keppnin er haldin í tengslum við Evrópska tungumáladaginn sem haldinn er hátíðlegur þann 26. september ár hvert.
Á heimasíðu Húnavallaskóla kemur fram að sendiráð Kanada og Indlands hafa lagt keppninni lið, sem og forlagið Salka. Keppt er í fjórum aldurshópum: 6. bekkur og yngri, 7.-8. bekkur, 9. – 10. bekkur og framhaldsskóli.
Húnavallaskóli sendi inn fjórar sögur í ár og var þemað leikir. Magnea Rut hlaut 1. verðlaun í sínum aldursflokki fyrir söguna sína „Just a Little Imagination“.
Verðlaun voru afhent við hátíðlega athöfn í bandaríska sendiráðinu föstudaginn 1. mars. Sonja Suska kennari við Húnavallaskóla tók meðfylgjandi mynd en hér má skoða fleiri myndir sem hún tók við tilefnið. Smásögurnar má lesa hér.