Magnús Örn Íþróttamaður USAH
Um síðustu helgi var haldið 95. ársþing Ungmennasambands A-Hún. þar sem um þrjátíu fulltrúar mættu ásamt gestum frá ÍSÍ og UMFÍ. Fram kom á þinginu að mikil afmælisveisla verður í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi laugardaginn 31. mars en daginn áður verður sambandið100 ára þ.e. 30. mars.
Á þinginu var auk venjulegra aðalfundarstarfa valinn Íþróttamaður ársins sem kom í hlut Magnúsar Arnar Valssonar úr Geislum en Magnús Örn hefur aðallega einbeitt sér að kúluvarpi og stóð sig mjög vel á síðasta ári.
Ný stjórn var kosin án kynjakvóta þar sem hún er eingöngu skipuð konum og er hún eftirfarandi:
- Hafdís Vilhjálmsdóttir
- Sigrún Líndal
- Guðrún Sigurjónsdóttir
- Jófríður Jónsdóttir
- Formaður var kjörin Aðalbjörg Valdimarsdóttir