Málþing: Hvernig náum við meiri árangri?
Fagráð í hrossarækt og Landbúnaðarháskóli Íslands hafa boðað til málþings um kynbótakerfið í hrossarækt föstudaginn 6. september nk.í Ásgarði á Hvanneyri. Dagskráin samanstendur af nokkrum inngangserindum um ýmsar hliðar kerfisins þ.m.t. dómkerfið, dómstörf og sýningar, dómara, kynbótamat o.fl. en síðan taka við opnar umræður og markviss hópavinna með þátttöku málþingsgesta.
Fagráðið hvetur allt áhugafólk um kynbætur íslenska hestsins til að mæta og taka þátt en nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrirfram hjá Endurmenntun LbhÍ – www.lbhi.is/namskeid eða í síma 433 5000 og netfangið endurmenntun@lbhi.is . Nánari upplýsingar munu birtast á heimasíðu LbhÍ.