Málþing um fræðimanninn og þjóðsagnasafnarann Jón Árnason

Jón Árnason (17. ágúst 1819 – 4. september 1888).
Jón Árnason (17. ágúst 1819 – 4. september 1888).

Málþing verður haldið á Skagaströnd á afmælisdegi Jóns Árnasonar, þjóðsagnasafnara og bókavarðar, laugardaginn 17. ágúst næstkomandi en þá eru liðin 200 ár frá fæðingu hans. Dagskráin hefst með guðsþjónustu í Hofskirkju klukkan 11 en síðan verður afhjúpað söguskilti við Skagabúð og boðið til veitinga í félagsheimilinu Skagabúð.

Fyrsti fyrirlesturinn verður í Skagabúð en svo hefst málþingið sjálft í Fellsborg á Skagaströnd klukkan 13:30 og þar verða tónlistaratriði, ávörp og fleiri fyrirlestrar. Við Spákonufellshöfða afhjúpar forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, lágmynd af Jóni Árnasyni klukkan 16:30 og einni stundu síðar opnar Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður litla sýningu frá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni í fræðasetri HÍ í Gamla kaupfélagshúsinu.

Morguninn eftir verður ganga á sjálft Spákonufellið með leiðsögn Ólafs Bernódussonar.

Fyrirlesarar verða: Vilhelm Vilhelmsson, Rósa Þorsteinsdóttir, Kristján Sveinsson og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, en ávörp flytja forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og oddvitar Skagabyggðar og Skagastrandar. Sr. Bryndís Valbjarnardóttir predikar í Hofskirkju og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir er organistinn, en hún stjórnar einnig tónlistaratriðum á málþinginu.

Á haustmánuðum verða ráðstefnur í Landsbókasafninu og á vegum Árnastofnunar og afhjúpuð verður lágmynd af Jóni bókaverði í Þjóðarbókhlöðu og svo mun Reykjavík, bókmenntaborg Unesco setja upp s.k. bókmenntaskilti á Laufásvegi, við hús Jóns. Lágmyndina gerði Helgi Gíslason myndhöggvari. Landsmenn eru boðnir velkomnir til þessarar hátíðarsamkomu eða á einstaka þætti hennar.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir