Málþing um Jakob H. Líndal
Málþing um Jakob H. Líndal verður haldið í Félagsheimilinu Víðihlíð á morgun, laugardaginn 14. apríl, kl. 12-17. Þangað munu ýmsir sérfræðingar á sviði landbúnaðar og jarðvísinda koma og halda skemmtileg erindi sem tengjast þeim mikla frumkvöðli sem málþingið er kennt við.
„Skagfirðingurinn, Húnvetningurinn og frumkvöðullinn Jakob H Líndal fæddist í lok nítjándu aldar þegar mikil harðindi voru og tíðarfar erfitt. Hann braust til mennta við mikla fátækt og tókst með harðfylgi að nýta hæfileika sína samfélaginu til góða,“ segir um manninn í grein Sigríður Hjaltadóttir forstöðumanns Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna sem birt var í 9. tbl. Feykis 2012.
Á meðal þeirra sem taka til máls á málþinginu eru: Lára Magnúsardóttir forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Norðurlandi, Magnús Tumi Guðmundsson prófessor við jarðvísindasvið Háskóla Íslands og jarðeðlisfræðingur, Sigríður Friðriksdóttir jarðfræðingur frá Hrísum í Fitjárdal, Sveinn Jakobsson doktor hjá Náttúrustofnun Íslands og bergfræðingur, Skúli Skúlason rektor Háskólans á Hólum, Tumi Tómasson doktor hjá Hafrannsóknarstofnun og fiskifræðingur og Þorsteinn Sæmundsson doktor í jarðfræði og forstöðumaður hjá Náttúrustofu Norðurlands vestra.
Einnig verður farið í ferð um Víðidalinn og boðið upp á veitingar. Hér má sjá nánari upplýsingar um dagskránna.
Allir eru hjartanlega velkomnir. Málþingið er styrkt af Menningarráði.