Málþing um sveitarstjórnarmál
Málþing um sveitarstjórnarmál verður haldið á Akureyri föstudaginn 10. febrúar nk. frá kl. 11 - 15. Málþingið er haldið á vegum nefndar innanríkisráðherra um eflingu sveitarstjórnarstigsins en í henni eiga einnig sæti fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Á málþinginu verður meðal annars skýrt frá könnun meðal sveitarstjórnarmanna og alþingismanna um afstöðu þeirra til lýðræðismála, sameiningarmála og samvinnu sveitarfélaga, segir á heimasíðu Innanríkisráðuneytisins. Þá verða flutt erindi um stöðu og stefnu varðandi eflingu sveitarstjórnarstigsins.
Málþingið verður haldið í húsnæði Háskólans á Akureyri. Boðið verður uppá léttan hádegisverð. Hér má sjá dagskrá málþingsins.
Þátttakendur geta skráð sig á málþingið með því að senda tölvupóst á netfangið arny.g.olafsdottir@irr.is.