Margrét Petra í Monitor
Margrét Petra Ragnarsdóttir á Sauðárkróki verður fulltrúi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í Söngvakeppni framhaldsskólanna sem fram fer laugardagskvöldið 9. apríl nk. Lagið sem hún syngur er King Of Anything með íslenskum texta Helga Sæmundar Svartúlfs.
Monitor sem m.a. er á Mbl.is kynnir keppendurna í söngvakeppninni og var Margrét í kynningunni í gær þar sem hún segir m.a. frá sínum högum, Sauðárkróki, skólanum og að endingu beinir hún orðum sínum til Audda Blöndal sem hún segir að ætti að vera Króksurum til meiri sóma. Viðtalið við Margréti Petru er hægt að nálgast HÉR.