Margt að gerast hjá Farskólanum
Nýlega hófst á vegum Farskólans námskeiðsröð í fullvinnslu ýmiss konar landbúnaðarafurða. Námskeiðin eru öll haldin í Matarsmiðju BioPol á Skagaströnd og eru styrkt og niðurgreidd af SSNV, Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
Fyrirhugað er að halda nokkur mismunandi dagsnámskeið og verður hægt að sækja stök námskeið eða alla námskeiðsröðina sé þess óskað. Nú þegar hafa nokkrir hópar farið í gegnum námskeið í úrbeiningu og er fullbókað á það næsta sem halda á næstkomandi fimmtudag. Til stendur að bæta við námskeiði og er verið að safna í hóp. Enn eru laus pláss á önnur námskeið.
Námskeiðin sem boðið er upp á eru:
Úrbeining á kind – leiðbeinandi Páll Friðriksson.
Heit- og kaldreyking á villibráð – leiðbeinandi Þórhildur Jónsdóttir.
Pate- og kæfugerð - leiðbeinandi Þórhildur Jónsdóttir.
Fars-, pylsu- og bjúgnagerð – leiðbeinandi Páll Friðriksson.
Hrápylsugerð – leiðbeinandi Páll Friðriksson.
Söltun og reyking – leiðbeinandi Páll Friðriksson.
Að þurrka og grafa kjöt – leiðbeinandi Páll Friðriksson.
Skráning á námskeiðin er í síma 455-6010 eða á farskolinn@farskolinn.is.
Í fyrravetur stóð Farskólinn fyrir námskeiðinu „Matarsmiðja – Beint frá býli“ í Skagafirði. Námskeiðið mæltist mjög vel fyrir og nú á að endurtaka leikinn í Húnavatnssýslum. Á námskeiðið kemur fjöldi gestafyrirlesara, farið verður yfir hreinlætis- og örverufræði, úrbeiningu og vinnslu, geymsluþol, merkingar, vöruþróun, uppskriftagerð, gæðamál, lög og reglur og sölu- og markaðsmál. Mikil áhersla verður lögð á verklega þáttinn og farið yfir framleiðslu á vörum úr kindakjöti. Þá fá þátttakendur einn vinnsludag í Vörusmiðju BioPol á Skagaströnd endurgjaldslaust.
Námskeiðið verður haldið miðsvæðis í Húnavatnssýslum og er áætlað að það hefjist í lok október. Lágmarksfjöldi á námskeiðið er tíu þátttakendur. SSNV er einnig bakhjarl þessa námskeiðs.
Halldór B. Gunnlaugsson hjá Farskólanum gefur upplýsingar um námskeiðið í síma 455-6013 og einnig er hægt að senda fyrirspurnir á halldorb@farskolinn.is