Margt að sjá á vorsýningu nemenda Blönduskóla

Vorsýning nemenda Blönduskóla var haldin sl. miðvikudag en þá gáfust foreldrar, ömmum og öfum og öðrum gestum kostur á að skoða þá muni sem nemendur skólans hafa búið til í textíl- og myndmennt, listasmiðju og fatasaumi. 

„Að vanda var margt að sjá og reglulega gaman að skoða fjölbreytt verk sem unnin hafa verið í myndlist, textílmennt, fatasaumi, listasmiðju og á þemaviku um Afríku,“ segir á heimasíðu skólans.

Þar mátti smakka sýnishorn af verkum nemenda í heimilisfræði og nemendur úr 9. og 10. bekk, sem fóru í iðngreinakynningu í FNV, sýndu afrakstur dvalar sinnar við Fjölbrautaskólann.

Einnig fengu gestir að sjá afrakstur nemenda í fatasaumi með tískusýningu en tískusýningin er árlegur viðburður á vorsýningunni og þykir orðið ómissandi, samkvæmt heimasíðu skólans.

Hægt er að skoða myndir frá sýningunni á myndasíðu skólans.

 

Fleiri fréttir