Margt fé að finnast á lífi
Samkvæmt heimasíðu Landsbjargar berast afar misvísandi fregnir af ástandi fjár. „Mikið er þó að finnast á lífi en hafa ber í huga að aðeins hefur tekist að gera grein fyrir hluta þess fjár sem saknað er,“ segir á vefsíðu Landsbjargar.
Björgunarsveitir eru nú að störfum í Fitjárdal, Gautsdal og Laxárdal í Húnavatnssýslum og samkvæmt heimasíðu Landsbjargar verður farið með bændum og fé smalað úr Sauðadal síðar í dag. Hópar verða sendir í Kolbeinsdal og Mælifellsdal í Skagafirði.
Björgunarsveitir af öllu Norðurlandi, Austfjörðum og höfuðborgarsvæðinu hafa tekið þátt í þessari gríðarstóru aðgerð um allt Norðurland sem nú er á fjórða degi. Mikill fjöldi tækja í eigu björgunarsveita er notaður við leitir; tugir vélsleða, átta snjóbílar, fjöldi fjórhjóla, og jeppa auk þess sem kerrur og þotur koma að góðu gagni við að flytja fé.