Markaðstorg rís við Húnabúð
Samkvæmt frétt á huni.is hafa þau Sigurlaug og Sigurður í Húnabúð, Blönduósi, hug á að koma á legg markaðsdögum fyrir framan verslunina sem yrði vikulegur viðburður. Framkvæmdum er nú að ljúka en stefnt er á að malbika og helluleggja í næstu viku og að skjólgirðing rísi í framhaldinu sem afmarkar svæðið.
Hugmyndin með markaðsdögunum er sú að handverksfólk úr héraði geti leigt sér borð með aðgangi að rafmagni og geti þá selt vörur sínar á blíðviðrisdögum.
Þá kemur ennfremur fram á vefnum að þeir sem hafi áhuga á þessu sé bent á að hafa samband við Sigurlaugu í Húnabúð í síma 551 0588 eða á netfangið hunabud@hunabud.is. Þá er einnig kallað eftir tillögum um hvaða vikudagur sé hentugastur fyrir markað. Dagsetning í samræmi við óskir verður sett á um leið og framkvæmdum er lokið.