Markaður á Blönduósi um helgina
Slegið verður upp markaði í íþróttahúsinu á Blönduósi laugardaginn 8. desember frá kl. 13:00-16:00. Allt mögulegt verður á boðstólnum, notað, nýtt og húnvetnskt handverk en um tuttugu söluaðilar hafa boðað komu sína. Þeim sem ætla að mæta er bent á að gengið er inn í íþróttahúsið Samkaupsmegin.
Allur ágóði af borðaleigu rennur óskiptur til ADHD samtakanna og einnig verður hægt að kaupa jólakort og endurskinsmerki til styrktar samtökunum. Heyrst hefur að hægt verði að kaupa steikt epli og kakó að dönskum sið svo það er um að gera að kíkja á skemmtilegan jólamarkað en hafa þarf í huga að ekki eru allir söluaðilar með posa.