Markaður í Húnaveri
Markaður verður haldin í félagsheimilinu Húnaveri 1. desember nk. milli kl. 13-17. Allskyns vörur verða á boðstólum og þeir aðilar sem verða með söluvörur á markaðinum eru t.d. Hestar og Menn, Anna Gallerí Gunnarsdóttir, Töfrakonur, Töfraglóð, Setta Handverk, Silfur-Hlaðan, Ísaumur og fleiri. Tombóla með glæsilegum vinningum til styrktar Guðjóni Óla og fjölskyldu hans. Og Kvenfélag Bólstaðarhlíðarhrepps verður með söluborð þar sem allur ágóði rennur til styrktar Jólaaðstoðar Félagsþjónustu Austur-Húnavatnssýslu.
Kvenfélagið verður svo með kaffisölu á staðnum, kr. 1000 fyrir 16 ára og eldri, kr. 500 fyrir grunnskólanema og frítt fyrir yngri. Allir eru hjartanlega velkomnir og vonumst við til að sjá sem flesta. Munið að margir söluaðilar taka EKKI greiðslukort.
Sjá frekari uppl. um markaðinn á Facebook;