Markaður í Húnaveri á laugardag

Haldinn verður markaður  í Húnaveri þann 3.desember nk. frá kl. 13 til 17. Ýmislegt verður á boðstólum t.d vörur frá fyrirtækjum eins og Hestum og mönnum, Töfrakonum, Töfraglóð, Sveitabakaríi, Silfur-Hlöðunni og glerlistakonan Anna Gunnarsdóttir verður með vörur sínar til sölu, ásamt mörgum fleirum söluaðilum.

 

Fatnaður, hestavörur, ýmis handverk, brauð og kökur, bæði notað og nýtt. Eitthvað fyrir alla og í jólagjafir. Kvenfélag Bólstaðarhlíðarhrepps verður svo með kaffi og með því á staðnum á góðu verði. Gestir eru hvattir til að fjölmenna en jafnframt er þeim bent á að allflestir söluaðilar taka ekki greiðslukort.

Fleiri fréttir