Markaður í Ósbæ um helgina
Markaður verður í Ósbæ á Blönduósi um næstu helgi. Þangað verður hægt að koma bæði laugardag og sunnudag frá klukkan 14-17.
Þar verður hægt að gera margvísleg góð kaup, m.a. bækur, harmonikkudiskar, fatnaður, prjónavörur, jóladiskur og fleira.
Boðið verður upp á kaffi og gosdrykki. Þeir sem vilja taka þátt geta pantað borð í síma s. 452 4215 eða 868 9691