Markaður og félagsvist í Ósbæ um helgina
Markaður verður í Ósbæ á Blönduósi um næstu helgi og verður þar til sölu ýmislegt notað og nýtt, handverk og fleira. Opið verður föstudaginn 16. mars kl. 15-17, laugardaginn 17. mars kl. 14-18 og sunnudaginn 18. mars kl. 14-16. Svo verður spiluð félagsvist á sunnudeginum kl. 17 en vinningar verða fyrir flesta slagi og lengstu setu við sama borð.
„Nú höfum við markað og seljum ýmsar vörur. Handverk og notað og nýtt t.d. barnaföt vel með farin á leikskólaaldur. Geisladiska, bækur og margt fleira. Sjón er sögu ríkari,“ segir í auglýsingu í nýjasta eintaki Gluggans.
Borðapantanir eru í síma 452 4215 og 868 9691.