Markmið um 300 þúsund króna lágmarkslaun orðið að veruleika
Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands, sem stéttarfélagið Samstaða á Blönduósi og Aldan í Skagafirði eru aðilar að, hefur undirritað nýjan kjarasamning vegna starfa á hinum almenna vinnumarkaði.
Í frétt á vef sambandsins segir að í upphafi viðræðna fór Starfsgreinasambandið fram með þá skýru kröfu að lágmarkslaun yrðu 300 þúsund krónur innan þriggja ára. Auk þess var lögð áhersla á sérstakar hækkanir hjá starfsfólki í útflutningsgreinum.
„Órofa samstaða og kraftur félagsmanna í aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins skilaði því skýra markmiði sem lagt var upp með í upphafi um hækkun lægstu launa. Markmið SGS um 300 þúsund króna lágmarkslaun er orðið að veruleika. Það var mat samninganefndarinnar að lengra yrði ekki komist eftir hörð átök og eðlilegt að bera samninginn upp til atkvæða meðal félagsmanna,“ segir á vefnum.
Næstu tvær vikurnar verður samningurinn kynntur í aðildarfélögum SGS og skal niðurstaða atkvæðagreiðslu liggja fyrir 22. júní.
Nánar má lesa um samningin á vef SGS.