Markmiðið er að 100 milljónir fleiri Evrópubúar hreyfi sig

Ungmennafélag Íslands tekur þátt í stórri herferð á vegum ISCA (International Sport and Culture Association) sem eru samtök um almenningsíþróttir og menningu hinna ýmsu landa í heiminum. Verkefnið mun standa yfir dagana 1.-7. október.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá UMFÍ er MOVE WEEK herferð sem ISCA ætlar sér að verði stærra verkefni á næstu árum. Árið í ár verður tekið sem undirbúningur fyrir þau sem eftir koma og markmiðið er að árið 2020 verið 100 milljónir fleiri Evrópubúa farnir að hreyfa sig reglulega. Markmiðið fyrir árið í ár er að fá sem flesta  Evrópubúa til að hreyfa sig fyrstu vikuna í október og hvetja til heilbrigðs lífsstíls.

  • Hvað: Evrópska íþrótta og heilsu vikan MOVE WEEK.
  • Af hverju: Til að stuðla að víðtækari þátttöku í íþróttum og hreyfingu til heilsubóta.
  • Hvar: Yfir 30 samtök víðsvegar um Evrópu taka þátt.
  • Hvenær: Fyrstu viku október 1.-7.október.
  • Hverjir: Íþrótta samtök, borgir, sveitafélög, íþróttafélög og stofnanir. Á Íslandi er það UMFÍ sem sér um samskiptin við ISCA (International Sport and Culture Association) vegna verkefnisins.
  • Hvernig: Úti í samfélaginu þar sem fólk er hvatt til frekari þátttöku í íþróttum og almennri hreyfingu.

Inni á heimasíðu verkefnisins má sjá viðburði sem verða um alla Evrópu. Eins má sjá upplýsingar inni á heimsíðu UMFÍ og á facebook síðu UMFÍ.  Þessir viðburðir eru víða um land og einnig má sjá hvað aðrar þjóðir eru að gera.

„Endilega nýtið ykkur tækifærið og mætið á fría viðburði um allt land til heilsueflingar,“ segir loks í fréttatilkynningu.

 

Fleiri fréttir